Við verðum öll fyrir
árásum. Á hverjum degi verðum við fyrir
áhrifum hættulegra og algengra sameinda sem nefnast stakeindir. Þegar við
drögum andann tökum við inn súrefni og við framleiðum stakeindir.
Stakeindir eru óstöðugar sameindir sem stela eða næla sér í rafeindir frá
öðrum sameindum og valda skemmdum í frumum okkar.
Sem betur fer býður náttúran upp á
lausn til við þessari ógn af völdum stakeinda — og felst lausnin í
andoxunarefnum. Andoxunarefni eru stöðugar sameindir sem eiga umframmagn
rafeinda. Þegar andoxunarefni komast í snertingu við sameindin láta þau af hendi
umframrafeindir og stöðva keðjuverkandi oxunarniðurbrotsstarfsemi stakeindanna.
Dr.
James Balch, sem er meðhöfundur að metsölubókinni Prescription for Nutritional
Healing sýnir áhrif stakeinda á epli sem hefur verið skorið í sundur. Eplið
verður brúnt eftir að hafa komist í snertingu við súrefnisstakeindir í
andrúmsloftinu. Með því að þekja helminginn af eplinu með sítrónusafa breytist
það ekki meira.
Andoxunarefni er vörn líkama okkar í fyrstu víglínu gegn stakeindum.
Andoxunarnæringarefni vernda gegn oxun með því að skilja stakeindir eftir
harmlausar. Líkami okkar framleiðir eðlilega nokkur andoxunarefna
efnasambönd, en mörg verður að taka inn með fæðunni. Þar sem fæst fólk
borðar nægilega mikið af ávöxtum og grænmeti er skortur á gæða
andoxunarefnum áberandi.