Pharmanex® andoxunarskanninn (Yfirlit vegna
markaðssetningar)
Karótenóíð
í brennidepli
Karótenóíð eru flokkur öflugra andoxunarefna sem hafa að undanförnu dregið
að sér gífurlega mikla athygli í vísindaheiminum. Appelsínugula litarefnið
í gulrótum varð hið fyrsta þessara efna sem var einangrað, og þess vegna
var heitið karótenóíð (enska: carot = gulrót) síðan látið ná til allra
þessara efna. Síðan þá hafa fleiri en 600 karótenóíð verið uppgötvuð í
náttúrunni, en aðeins 18 þeirra eru algeng í mannslíkamanum. Karótenóíðin
eru stór hluti af andoxunarefnunum en mörg önnur mynda líka andoxunarvef
líkamans—svo sem C- og E- vítamín, alfa lípóín sýra og flavónóíð svo að
fáein séu nefnd. Hvers vegna eru karótenóíð svo mikilvæg?
Að undanförnu hafa varnaráhrif karótenóíða gegn skemmdarverkum
stakeinda ýtt undir ítarlegar rannsóknir á einstökum karótenóíðum—einkum
lutein og lykópen. Lutein er mikilvægt fyrir augu og hjarta- og æðakerfi
en lykópen—öflugasta andoxunarefnið meðal karótenóíða—hefur í för með sér
umfangsmikla frumuvörn og vinnur gegn öldrun.
Mikilvægi líffræðilegra mælinga
Mælanleiki er grunnur allra vísinda, þannig
að það kemur ekki á óvart þótt heilbrigðisstarfsmenn miði mikið við
líkamsmælingar á borð við kólesteróltölur og blóðsykursmælingu. Hins vegar
gera flestar þessara aðferða ráð fyrir því að tekin sé blóðprufa. Þar sem
aukin hætta er á veirusýkingum og öðrum sýkingum með blóði vilja flestir
heilbrigðisstarfsmenn heldur beita öruggari aðferð við að mæla lífsmörk.
Bio-Photonics: Nýir möguleikar í leysitækni
Nýlegar framfarir í leysitækni hafa opnað
margvíslega möguleika fyrir þá sem hugsa um heilbrigði og vellíðan víða um
heima. Með aðferð sem á ensku nefnist Bio-Photonics er mögulegt að safna
ýmsum upplýsingum um líkamsástand með því að beina leysigeisla á yfirborð
handar. Vegna þess að hver einasta sameind í mannslíkamanum bregst við
ljósi á mismunandi hátt endurkastar hver sameind sínu eigin sérstaka
ljósfræðilega fingrafari. Vísindamenn hafa skilið fyrirbærið endurkastað
ljós í marga áratugi en aðeins á undanförnum árum eftir þróun Bio-Photonic
leysitækninnar hafa þeir getað nýtt tæknina til að safna upplýsingum úr
fólki á staðnum svo að segja.
Þróun Pharmanex® Bio-Photonic skannans
Eftir margra ára rannsóknir og lagfæringar hefur fjölda
heimsþekktra eðlisfræðinga og verkfræðinga tekist að fullkomna fyrsta
karótenóíðskönnunartækið í heiminum - Pharmanex® Bio-Photonic skannann. Í
fyrsta skipti er unnt að mæla karótenóíð andoxunarefni í lifandi vef í
mönnum. Þegar hreini blái leysigeislinn hæfir karótenóíð sameind í lófanum
breytist hann eilítið í átt að grænu ljósi vegna þeirra efna sem mynda
karótenóíðsameindir. Þegar andoxunarstig manns er mælt er það í raun magn
endurkastaðs græns ljóss sem er safnað saman og metið svo að fá megi út
andoxunartölu.
Þessi nýja tækni leyfir skjóta, nákvæma og örugga mælingu
á karótenóíðum í húðinni og hún samsvarar magni karótenóíða og annarra
andoxunarefna í mat, blóði og vefjum. BIO-PHOTONIC skanninn mælir
karótenóíð andoxunarefni og andoxunartalan er mikilvægur mælikvarði á því
hversu öflug almenn andoxunarvörn líkamans er.
Pharmanex® hefur einkarétt Bio-Photonic tækninni
NSE hefur öðlast alheimsréttindin á þessari
einstöku Bio-Photonic tækni í tengslum við sölu og prófun á fæðubótarefnum.
Vegna þessa hefur Pharmanex® verulegt forskot á önnur fyrirtæki sem
framleiða fæðubótarefni af því að Pharmanex® Bio-Photonic skanninn veitir
viðskiptavinum örugga sönnun fyrir því að LifePak® og aðrar Pharmanex®
vörur skipta raunverulega máli varðandi almennt heilsuástand þeirra og
vellíðan. Ekkert annað fyrirtæki í þessum geira verður fært um að bjóða
tækni sem veitir slíka handhæga sönnun á virkni andoxunarefna.
LifePak® — andoxunarefni
LifePak® er eina fæðubótarefnið sem inniheldur fjölvítamín og steinefni þar
sem klínísk prófun hefur sannað andoxunarvörn*. Rannsóknir sýna að LifePak®
eykur ekki aðeins karótenóíðinnihaldið heldur hefur það áhrif á andoxunarefni
almennt*.
Þeir sem nota LifePak® þurfa ekki lengur að reiða sig á vísindarannsóknir
eingöngu. Í fyrsta sinn getur fólk sem tekur LifePak® samkvæmt leiðbeiningum á
pakkanum fengið mælingu og séð með eigin augum ávinninginn af því að taka
LifePak® .