Pharmanex® er leiðandi í heiminum í þróun fæðubótarefna samkvæmt
lyfjastaðli. Fjöregg Pharmanex® er LifePak®
LifePak® vinnur gegn öldrun
Á 20. öldinni lengdist ævi manna að meðaltali um 30 ár. Á sama tíma jukust
stöðugt heilbrigðisvandamál tengd venjulegri öldrun. Ævi okkar lengist, en
lifum við betra lífi? Hvernig væri að fara að huga að heilsunni og
virkilega njóta þessara 30 aukaára?
Fleiri en 1.000 klínískar rannsóknir sýnir ávinninginn af innihaldsefnunum
í LifePak® Nýlegar rannsóknir benda eindregið til þess að meginástæða
öldrunar sé oxun frumna og skemmdir sem fríar stakeindir valda á DNA-erfðaefni.
Með klínískum prófunum hefur verið sannað að LifePak® ver líkamann gegn
oxun og stakeindum. LifePak® er hannað til að æviárin þín verði fjörugri!*
Veitir öfluga vörn gegn einkennum öldrunar og
hjálpar þér til að líta betur út og láta þér líða betur lengur*
Veitir einstaka vörn gegn mengun, eiturefnum, og
streitu í krafti meiri alfa lípóín sýru, lykópens og þrúgusteina útdráttar*
Veitir alhliða næringu til viðhalds heilbrigðum
beinum*
Býður alhliða blöndu af næringarefnum til stuðnings
heilbrigðu hjarta- og æðakerfi *
Inniheldur kólín og ínósítól, efni sem stuðla að
heilbrigðum heila og lifri*
Býður merkjanlegan ávinning fyrir heilsu þína í
krafti hinnar klínískt prófuðu samsetningar*
Ávinningur sem stenst samkeppni
LifePak® inniheldur fjölda næringarefna sem
beinast að og koma í veg fyrir skemmdarstarfsemi stakeinda á DNA sem er
fylgifiskur þess að aldurinn færist yfir. DNA er erfðaefnið í kjarna frumunnar
og orkubúum hennar. Heilbrigt DNA í frumum er nauðsynlegt til þess að frumur
geti endurnýjað sig en slíkt gerist stöðugt á hverjum degi. LifePak® inniheldur
alhliða næringarefni sem stuðla að betri hæfileikum erfðaefnisins í frumunni til
að þola skemmdarstarfsemi frjálsra stakeinda. Það inniheldur 500 prósent meira
lykópen, og 300 prósent meiri alfa lípóín sýru, og 150 prósent meiri
þrúgusteinaútdrátt. Til viðbótar inniheldur það katekín sem samsvarar fjórum
bollum af grænu tei - þetta gerir að verkum að engin önnur fjölvítamín/steinefnatöflur
á markaðnum jafnast á við LifePak® hvað varðar andoxunargetu! Alhliða samsetning
LifePak® skýtur sannanlega meiri en 100 keppinautum ref fyrir rass, eins og fram
kemur í LifePak® áskoruninni.*
Hentar þessi vara mér?
LifePak® ætti að vera grunnvaran hvar sem
Pharmanex® fæðubótarefni eru notuð. LifePak® hentar öllu fullorðnu fólki á
aldrinum 18 og eldri.